SOS foreldri
Vertu SOS foreldri
SOS-foreldri framfleytir barni sem áður var umkomulaust og veitir því fjölskyldu á góðu heimili. Barnið fær menntun og öllum grunnþörfum sínum mætt. Þú færð reglulega fréttir og myndir af SOS-barninu þínu.
Þegar þú velur að styrkja „öll börn“ styrkirðu öll börnin í einu SOS barnaþorpi og færð almennar fréttir úr tilteknu barnaþorpi.
Viljir þú sérstaklega styrkja barn eða börn í Króatíu, skrifar þú einfaldlega „Króatía" í dálkinn fyrir athugasemdir.
Mánaðarlegt framlag
SOS-foreldri barna á Gaza
Sem SOS-foreldri barna á Gaza styrkir þú SOS barnaþorpið í Rafah á Gaza í Palestínu með mánaðarlegu framlagi sem nemur 4.500 krónum. Framlagi þínu er varið í daglegan rekstur þorpsins svo tryggja megi öryggi og velferð þeirra barna sem þar búa og fer þeim nú fjölgandi. Einnig er hægt að greiða stakt framlag í neyðarsöfnun SOS.
Neyð á Gaza
Styrktu neyðaraðgerðir SOS fyrir fyrir börn og fjölskyldur þeirra á Gaza í Palestínu. Þar ríkir mikil neyð. Tugþúsundir hafa látið lífið og fjöldi barna misst foreldra sína. SOS Barnaþorpin starfa á Gaza og eru í góðri aðstöðu til að hjálpa börnum þar.
Veldu eitt af boxunum hér fyrir neðan. Athugaðu að þú getur breytt fjárhæðinni (lágmarksupphæð er 1.000 krónur.)
Gerast SOS fjölskylduvinur
Sem SOS-fjölskylduvinur kemurðu í veg fyrir að börn verði vanrækt og yfirgefin. Í fjölskyldueflingu SOS tökum við fyrstu skrefin með fjölskyldum út úr sárafátækt svo þær getið staðið á eigin fótum og veitt börnunum bjarta framtíð. Þú ákveður styrktarupphæðina og færð reglulega uppýsingapóst um verkefnin sem við fjármögnum.
85% fjárframlaga SOS-foreldra renna til barnaþorpanna
Aðeins um 15% framlaga fara í umsýslu
Sögur
Sjá allar sögurÓlétt unglingsstúlka var hvergi velkomin
Josiane er 35 ára einstæð tveggja barna móðir sem býr í þorpi í Rúanda og hefur líf hennar verið all...
Varð móðir 13 ára og hraktist úr skóla
Írena* var aðeins nýorðin 13 ára þegar hún varð ólétt eftir nauðgun. Allt í einu voru framtíðardraum...
„Barnaþorpið er kjarni manneskjunnar sem ég er í dag“
Það hljómar kannski óhugsandi að foreldri geti bara látið verða af því að yfirgefa börn sín en það e...
Þriggja ára stúlka í áfalli fannst ein og fylgdarlaus á Gaza
Amina er þriggja ára stúlka sem fannst ráfandi um fylgdarlaus við eftirlitsstöð á Gaza í Palestínu í...
Fréttir
Sjá allar fréttirStærsta erfðagjöf í sögu SOS Barnaþorpanna
SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa fengið stærstu erfðagjöf í sögu samtakanna eftir að Landsréttur úrskurðaði erfðaskrá Baldvins Leifssonar vél-, renni- og bátasmiðs gilda og SOS Barnaþorpin þar með aðale...
Börn og starfsfólk barnaþorpsins flutt á brott frá Gaza
68 börn og 11 starfsmenn SOS barnaþorpsins í Rafah á Gaza í Palestínu hafa verið flutt á brott úr barnaþorpinu. Þau eru komin á öruggari stað til Bethlehem á Vesturbakkanum þar sem hitt SOS barnaþorpi...
Bersýnilegur árangur af íslensku verkefni fyrir þolendur í Tógó
Bersýnilegur árangur hefur náðst í íslensku verkefni gegn kynferðislegri misnotkun á börnum í Tógó. Verkefnið hefur náð til 257 stúlkna sem eru þolendur kynferðisbrota, fjölgað slíkum málum á ...
Vefverslun
Sjá allar vörurFlóttabangsinn
Með kaupum á flóttabangsanum hjálpar þú flóttabörnum að aðlagast nýjum aðstæðum og veitir þeim tækifæri á menntun og betra lífi.
Andlit Afríku
Bókin „Andlit Afríku - einn á hjóli í Afríku“ er gjöf frá Hringfaranum, styrktarsjóði. Allt söluandvirði bókarinnar rennur óskert til SOS Barnaþorpanna.
SOS klútar
Klútur/buff (2 stk) merktur SOS Barnaþorpunum. Buffin eru seld tvö saman (svart og hvítt) á samtals kr. 1.000.-
Bragarblóm
Bragarblóm. Ljóðabók eftir Ragnar Inga Aðalsteinsson, einn kunnasta hagyrðing landsins og velgjörðamann SOS Barnaþorpanna til fjölda ára. Allt söluandvirði bókarinnar rennur óskert til SOS.
Minningarkort SOS
Hægt er að heiðra minningu látins vinar eða ættingja á fallegan hátt með því að senda peningagjöf til styrktar SOS Barnaþorpunum. Minningarkortið er sent á heimilsfang ættingja/vina hins látna og gjöfin verður skráð í nafni hans. Allar minningargjafir renna óskertar til uppbyggingarstarfs SOS Barnaþorpanna.
Nánar